Life is jelly
12.02.2008 10:58:35 / anibuli

my milkshake brings all the boys to the yard...

þessar tvær til þrjár trygglindu sálir sem detta hingað inn daglega, ég vildi koma þessum skilaboðum til þeirra. Bloggið er dautt... takk fyrir samfylgdina.

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 10:40:00 / anibuli

ótrúlegt

ég hef ekkert að segja, ég er búin að gera margar heiðarlegar tilraunir til að skrifa eitthvað...en ég hef bara ekkert að segja. Kötturinn minn er dúlla, bjór er góður og ég finn fyrir skrítnum titring í rassinum stanslaust, ég held það sé svokallaður daugasími, þegar maður er vanur að gemmsinn hringi og titri og svo festist tilfinningin. Getur líka valdið þuglyndi hjá fólki þegar það sér að enginn hafi verið að hringja í alvöru. Ég er nett þung á mér í dag, ekki útaf draugagemmsa heldur útaf því ég er koffinfrí og alein uppá hlöðu. Masókisti? Það held ég barasta....

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 11:58:09 / anibuli

pétur

Snæfríður vildi ekki koma á barinn, hún sagðist vera að passa uppá línurnar, þannig ég fór ein. Ég klifraði uppá barstól, panntaði mér lítinn bjór og brosti fallega til barþjónsins sem brosti ekki á móti. Ég veit af hverju það er, fæstir brosa á móti, þeir líta undan. Það er af því ég er svo afmynduð...og lítil. Svo loðir líka við mig vond þvaglykt. En Snæfríður segir að ég sé fallegur persónuleiki og ef fólk sér það ekki, þá er einfaldlega ekkert varið í það fólk. Snæfríður er sjálf há og grönn og í mannfræði. Stundum held ég hún hangi bara með mér uppá aukaeiningar og góða ferilskrá, en Snæfríður segir það ekki vera tilfellið, heldur líki henni vel við mig. En ég veit að Snæfríður er lygasjúk tík. Nú pannta ég mér nokkur skot, ég verð full og dett af stólnum, aftur fyrir mig. Þarna ligg ég núna, ófær um að standa sjálf á fætur sökum afmyndaðs líkamans og ég sé að engan langar að aðstoða mig útaf öllum útbrotunum. O jæja,það verður þá bara að hafa það.

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 12:44:21 / anibuli

sokkakver

lekinn í þakinu er sem betur fer hættur og skemmdirnar í lámarki og vantið blessunarlega komið aftur á hjá okkur. Það er satt sem heimspekingarnir sögðu hér forðum: maður áttar sig sjaldnast á hvaða gull maður hefur í höndunum þar til maður týnir því. Þannig líður mér núna gagnvart klósetinu mínu. Þvílík gersemi!! Þvílíkt og annað eins djásn og og þarfaþing.

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 11:16:08 / anibuli

27.09, veikindadagbók, skrifuð í yfirgefnu klaustri í suður Tyrol

það var deginum ljósara að hann var með kvef. Aðrar eins hrotur og snýtingar hef ég ekki áður heyrt. Ég reyndi að einbeita mér að öðru, leiða þetta hjá mér, en gat það ekki. Ég hlustaði á vindinn væla fyrir utan gluggann, skrifaði verkefni og las bækur. En kvefhljóðin náðu mér alltaf til eyrna. Svo fékk ég hálsbólgu, mátulegt á mig. Er blessunarlega laus við hósta enn sem komið er, ertingur í hálsi fer alltaf í taugarnar á mér þar sem það skemmir fyrir mér allan nætursvefn. Úti fyrir heyri ég ýlfur, ég held það séu ungar Kvennaskólapjöllur á leið í bakaríið við hliðin á. Ég þori ekki fyrir mitt litla líf að hreyfa mig, næm augu þeirra skynja minnstu hreyfingu. Ég vona bara að þær fari fljótt aftur í tíma. Guð varðveiti sálu mína og forði mér frá öllu illu. Hvenær verður þetta allt yfirstaðið??

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 16:02:47 / anibuli

einu sinni var

stúlka sem var ekki nema tuttuguogsex ára gömul, svo einn daginn vaknaði hún upp við vondan draum og var þá orðin tuttuguogsjö. Henni leið bölvanlega. Þessvegna ákváðu vinir hennar að létta henni lund og borða með henni hráan fisk og hrísgrjón. Það þótti tuttuguogsjö ára gömlu stúlkunni afskaplega vænt um og át hún þar til hún gat ekki torgað meiru. Svo drakk hún. Drakk til að gleyma. Og endaði full....vaknaði svo daginn eftir með hausverk og ennþá tuttuguogsjö ára.

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 14:56:42 / anibuli

önn nr 4

tíminn líður, bíður ekki eftir neinum, ekki einu sinni mér. Það sést best á hrukkunum sem safnast á andlitið á mér, brjóstunum sem farin eru að lafa og orðaforðanum. Önn nr 4 er hafin hér í hinni ágætu menntastofnun Háskóla Íslands, ég er með rauðhærða gerpinu í öllum kúrsum. Í gær sat ég beint fyrir aftan hana og mig langaði mest af öllu að slá hana aftan í hnakkann í hvert skipti sem hún hreyfði sig eða sagði eitthvað. Guð fyrirgefi mér!! Öll erum við nú þín sköpunarverk, hún er bara greinilega eitthvað illa misheppnuð. læt svo fylgja hér með litla setningu sem ég heyrði í tíma í gær: borðið er grænt....einsog líf mitt. Svo er ég blessunarlega flutt inní Krankhausstrasse sieben og þar líður mér vel. Andi ritlistarinnar er allt í kring og undir og fyrir ofan. Birna mín, þessi færsla er mikið skrifuð bara fyrir þig, ég man þegar þú sendir mér skilaboð á netinu og ég hef engu gleymt. Engu.

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 11:20:25 / anibuli

tippitapp

lekker þyki ég víst ekki lengur. En það er ekkert sem gratineruð rauðspretta getur ekki lagað. Ég hef verið með cravings fyrir svoleiðis alla vikuna, alveg síðan ég bar hana á borð fyrir fólkið á 103. þá hugsaði ég með mér, mikið ofsalega langar mig í eina sprettu. En ég var þegar södd af lúðu. Svona er lífið oft grimmt. Já, svona er lífið grimmt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 17:30:16 / anibuli

ég á

ÍBÚÐ! keypti eitt stykki svoleiðis, mína fyrstu. Já takk fyrir. Obbslega gaman. Gleðilega páska og farsælt komandi sumar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 10:24:05 / anibuli

ekkert gabb

í gær. í dag sé ég frammá 13 tíma hérna á bókhlöðunni. Illa þokkaðar menntaskólapíur mættar á svæðið, ég ætla að segja þeim öllum að steingrjóthaldakjafti ef þær svo mikið sem ræskja sig. Sálin er dauð....

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.03.2007 13:12:03 / anibuli

jesús kristur, einhleypur

ég dýfði tánni ofan í baðkarið, vatnið var mátulegt. Steig fætinum ofan í alveg og svo fylgdi restin af mér líka.Ég lá og sullaði kæruleysislega ofan í vatninu. þú komst svo inn. Spurðir hvernig baðið væri með prakkaralegu glotti. Fínt, svaraði ég, því glottiru? Ekki útaf neinu sagðir þú, ekki útaf neinu. Svo fann ég fyrir undarlegum sviða útum allan líkaman. Sviðin ágerðist og sömuleiðis glott þitt. Þú horfðir fullur eftirvæntingar á mig. Svo hlóstu, hahaha, fyrsti apríl, ég setti blásýru útí vatnið, haha! Þá sá ég að húðin á mér var að mestu horfin af beinunum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 10:13:24 / anibuli

my milkshake

Beljan stóð og starði á mig með illum augum, ég vissi strax að eitthvað var að. Hún horfði á mig með fallísku augnarráði og baulaði, þá áttaði ég mig á því að hún var naut. Þessi fallísku augnarráð ná alltaf að smjúga inn að beini, hugsaði ég. Horfði á sjóinn og ströndina, vissi að ég væri komin útá jaðarinn, út úr hinu karllæga samfélagi. Fannst ég vera skáld sem bæði um kveðju heim til elskunnar minnar sem stæði, ekki með rauðan skúf og í peysu, en með ljósa lokka og kisur í faðminum hinumegin við sjóndeildarhringinn. Hugsaði um tennur og myndavélar, lestir og ferðalög, óskilgetin börn, vondar mæður, leiðinlega eiginmenn og spennandi elzkhuga, Jesus krist einhleypan. Það eru duldar merkingar í öllu nú til dags, skírskotanir og vísanir. Krónos hefur hlaupið frá mér, adeu!

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 11:53:29 / anibuli

ég kann ekki

að læra af reynslunni. Það er mér lífsins ómögulegt. heyrði einu sinni sögu af konu sem lærði ekki af reynslunni. Hún dó, fékk raflost í baðkarinu einn daginn. Hvernig ætli fari þá fyrir mér? Framundan eru góðir tímar, ég mun ofgera mér í vinnu og lestri og verða fúllynd og leiðinleg, svo þegar allt er yfirstaðið fer ég á fyllerí og stofna til hópslagsmála. Hef góða reynslu af því. Svo fer ég til írlands og slappa af og drekk meira. en einmitt núna ætla ég að fara og detta niður dauð....cherio!

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 15:28:35 / anibuli

gerðiðað

...notaði nýju rauðu skóna í skólanum. tók tíma fyrir fólk að venjast því að kalla mig rauðu eldinguna. í skólanum tala allir um próf og lokaritgerðir og gemmtilega hluti í þeim dúr. fokkadukk hvað eg nenni ekki því ekki. endurnýja hér með loforðið sem ég gaf sjálfri mér og ég ætla, ætla að gera mig ósýnilega frammí miðjan maí. hip hip fyrir námsmannalífi...

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 14:45:47 / anibuli

St Patreksdagur

Þökk sé snillingnum og gæðablóðinu Patreki er eyjan græna í dag öruggur og snákalaus staður til að búa á og þess vegna fékk hann dag sér til heiðurs og við í staðinn fengum enn eina afsökunina til að drekka bjór. Allir saman nú...heilagur patrekur við elzkum þig, skál í botn! Svo var bruðkaup í gær, engir rauðir skór, bara falleg brúður og nýr eiginmaður hennar, frítt vin og fingramatur. Allt hin bezta skemmtun. Ég stend samt enn við orð mín og segist ætla taka mig af skemmtanamarkaðnum núna...og það mun ég gera.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9